Kvennamorðklúbburinn
Fyrsta saga bókaseríunnar um Kvennamorðklúbbinn kom út árið 2001 en serían samanstendur af alls 23 bókum sem hafa verið þýddar á fjölda tungumála og notið vinsælda um allan heim. Kvennamorðklúbbinn skipa þær Lindsay Boxer, Cindy Thomas, Claire Washburn og Jill Bernhardt en saman leysa þær dularfull morðmál í heimabæ sínum, San Francisco.
James Patterson (1947) er bandarískur rithöfundur. Hann gaf út sína fyrstu skáldsögu árið 1976 og hefur skrifað hundruði bóka í kjölfarið. Þótt Patterson sé þekktastur fyrir spennu- og glæpasögur skrifar hann innan fjölbreyttra bókmenntagreina, bæði fyrir börn og fullorðna. Hann er mikilvæg rödd í bókmenningu í Bandaríkjunum og talar gjarnan fyrir mikilvægi lestrar- og skrifkunnáttu barna. Í gegnum árin hefur Patterson veitt skólum, bókasöfnum og sjálfstæðum bókabúðum rausnarlegan stuðning í þágu góðra málefna.